Heimasíða 6.X

Menntaskólinn í Reykjavík

25.06.2007 21:21:01 / Geir

Interrailferðalagið!

Hvet alla sem eru heima á Íslandi að vinna til að fylgjast með sjúklega skemmtilegu bloggi um interrailferðalag mitt ásamt Gunnari Helga og Jóni Magnúsi.

 

www.einarerheima.blog.is

 

Kv. Geir Atli 


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.06.2007 00:08:56 / Ragnheiður

Faunan tilbúin!

Faunan er tilbúin og það eiga allir að sækja sína á morgun, sunnudag, milli 14 og 16 í T-stofu. ATH! Þetta er í eina skiptið sem hún verður afhent!

Og líka ef þið viljið eiga upprunalega eintakið af Faunumyndinni ykkar þá endilega talið við mig...  


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.05.2007 12:08:47 / Einar

dfhjdfgsh

Þetta er Freyr sem talar í nafni Einars. Ground control to 6-X. Það verður smá prófloka/afmælis grill/partý hjá mér í kvöld að Jóruseli 11, megið mæta bara þegar ykkur hentar, helst ekki mikið fyrir 6 samt. Vona að sem flestir nái nægum lausnarhraða til að komast útúr húsi og mæta. Yfir og út, Freyr

» 2 hafa sagt sína skoðun

27.05.2007 20:57:07 / Þórir

Próflokagrillteiti...

...hjá mér á morgun, ef það er gott veður.

Grill, sól og bjór...jei!

 

  


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.05.2007 15:44:52 / Kári

Djamm

 

Fann þessa mynd á heimasíðu nýmáladeildar en ég held hún sé mun meira viðeigandi hjá okkur. Hún lýsir allavega mjög vel mínum tilfinningum þess stundina.

Djamm á mánudag.


» 6 hafa sagt sína skoðun

21.05.2007 15:28:08 / Hjálmar

Mmmm

Já það er svo sannarlega Mmmm fyrir munnlegt. Klukkan hvað  byrjar það svo á fimmtudaginn?

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.05.2007 16:21:11 / Þórir

Próschegt

Jæja, er ekki kominn tími á skipti á útdráttum úr fyrirlestrunum sem við héldum í íslensku, eins og hinn frábæri Ólafur gerði með flottu og nytsamlegu glósunum sínum úr smásögunni Tilbury.

Þar sem þetta er svo stutt færsla læt ég, í tilefni af því að ég var í tölvufræðiprófi áðan, uppáhaldshluta minn úr glósum Rúnars um tilvísunarbreytur fylgja með:

Þegar tilvísunarbreyta af tagi yfirklasa tekur við tilvísun í
hlut af tagi undirklasa breytist tag tilvísunar yfir í tag
yfirklasans.

Hvað eru mörg t í því...?


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.05.2007 19:56:16 / Kári

Eurovision

Ég afneita evrópskum uppruna mínum, langar einhverjum að flytja til Norður Kóreu?

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.05.2007 16:57:58 / Halla

Stúdentspróf (The Shawshank Redemption)

Ég veit ekki hvort ég er ein um að finna til einhvers konar tengingar við þessa kvikmynd, Shawshank Redemption, í þessu stússi öllu. Sérstaklega þegar maður les málsgrein á borð við þessa (í kennslubók sem maður þurfti að borga morðfjár fyrir) :

 

"Umhverfisaðstæður við setmyndun skírskota til þeirra aðstæðna sem ríktu við myndun setsins"

 

Þetta er eins og að segja "hlutur x skírskotar til hlutar x", sem er fáránlegt, þar sem maður hlýtur (af eigin skynsemi eða vegna rökfræði Aristótelesar) að gera ráð fyrir að x = x, hlutur x SÉ einfaldlega hlutur x. Guðbjartur. Hvernig dettur þér í hug að setja fram svona fásinnu?


» 7 hafa sagt sína skoðun

27.04.2007 20:09:16 / Daði

Faunumyndin

Hérna er myndin sem verður á Faunusíðunni okkar:

Myndin sést víst ekki hjá öllum. Þeir sem ekki sjá hana geta farið inn á myndasíðuna mína og í albúmið "Síðasti skóladagurinn". Hún er þar.

 

Ég er líka búinn að setja Dimissio myndirnar inn á myndasíðuna.

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.04.2007 11:57:19 / Ragnheiður

Myndir?

Takk fyrir gærdaginn! Þetta heppnaðist bara mjög vel og var ógeðslega gaman :)

Nenna einhverjir sem tóku myndir að setja þær inn sem fyrst? Get ekki beðið eftir að sjá þær... 


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.04.2007 20:31:32 / Ragnheiður

Á döfinni

Það er mikið að gerast á næstunni...

Gangaslagurinn verður haldinn en það verða bara 70 manns úr 6. bekk og 70 manns úr 5. bekk sem fá að taka þátt.

Faunan fer í prentun á þriðjudaginn svo að þá verðum við að vera búin að skrifa öll gullkorn inn á þær og búa til fremstu síðuna. Ég er búin að láta teiknarann fá myndirnar aftur og hún er núna að laga það sem þurfti að laga og síðan spreyjar hún þær. Það verður síðan hver og einn að sjá um að gullkornin verði sett á hans mynd pg að hún verði tilbúin til prentunar á þriðjudaginn. Í sambandi við fremstu síðuna, þá var niðurstaðan sú að við ætlum að hafa fyndnar/skemmtilegar myndir frá seinustu fjórum árum. Hver og einn verður að bera ábyrgð á að finna mynd og koma henni til Daða á morgun svo að hann geti sett síðuna saman í tæka tíð.

Dimissio verður á miðvikudaginn í næstu viku og við verðum að klára búningana og finna allar kennaragjafirnar. Ég held að það verði best að klára að mála búningana á mánudaginn eftir skóla. Við erum öll búin kl. 1 og þá getum við farið heim til Darra aftur og unnið í þessu. Síðan er æfing fyrir útskriftina kl. 3 í Háskólabíói, við förum á hana og síðan aftur að klára að mála. Tómas, Óli, Darri H og Helgi eiga eftir að borga 2500 kallinn fyrir búningunum og þegar þeir eru búnir að borga og ég er búin að borga konunni sem prjónar húfurnar þá eru eftir 3250 kr. Það þarf að kaupa slatta af málningu og penslum og límbandi í viðbót svo ég þarf að rukka um 400 kr. í viðbót fyrir þessu. Í sambandi við gleraugun... er einhver búinn að tjekka hvort það sé hægt að fá svona gleraugu einhvers staðar? Annars verðum við bara að búa þau til einhvern veginn...

Held að það sé ekkert meira í bili...

Kveðja,

Ragga


» 10 hafa sagt sína skoðun

12.04.2007 19:54:07 / Ragnheiður

Valli...

Er búin að panta peysurnar og get sótt þær á morgun. En ef ég á að geta sótt þær á morgun þá verð ég að fá peninginn fyrir þeim á morgun í skólanum. Búningurinn í heild kostar sirka 2500 kr.  sem er peysan, húfan, málningin á peysuna, penslar og svoleiðis. Best væri ef þið gætuð komið með allan peninginn á morgun. Ég næ síðan bara í þær peysur sem búið verður að borga.

Síðan verðið þið að muna að finna mynd af ykkur síðan þið voruð lítil sem fer á undan bekknum í Faunu. Við verðum að fá þær í seinasta lagi á mánudaginn svo að Daði geti skannað þær inn og sett þetta allt upp.


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.04.2007 19:17:21 / Ragnheiður

6.X!

Það eru tveir hlutir helst á dagskrá núna...

Fauna:

Við fáum teikningarnar á föstudaginn, seinnipartinn, og því er SEINASTI séns til að borga á föstudagin. Þá læt ég teknarann hafa restina af peningnum. Einar Bjarki, Fannar, Halla, Helgi og Svanhvít eiga eftir að borga og Kári skuldar 500 kall. Einar Bjarki, Kári og Viðar skulda líka 500 kall fyrir kennaramyndunum síðan fyrir jól. Við fáum að sjá myndirnar og getum leiðrétt ef e-ð er vitlaust og skrifað inn gullkorn og síðan þarf teiknarinn að fá myndirnar aftur til að spreyja þær. Eftir það verður ekki hægt að breyta þeim.

Á morgun þurfum við að skrifa aftur upplýsingar um kennarana sem við erum að sjá um að teikna og líka gullkornin þeirra. Ég læt blað ganga.

Fremst í Faununa held ég að við séum búin að ákveða að hafa myndir af okkur öllum síðan við vorum fimm ára eða yngri. Það væri því frábært ef allir gætu fundið það til og komið með til mín.

Faunan fer í prentun daginn fyrir dimissio og því verður þetta allt að vera tilbúið þá.

Dimissio:

Á morgun læt ég blað ganga og þá þurfa allir að skrifa niður stærðina sem þeir þurfa á peysum svo ég geti pantað þær. Við fáum þær síðan daginn eftir. Þá verða allir að vera búnir að borga 1300 kr. fyrir þeim. Ef þið verðið ekki búin að borga mér á réttum tíma þá fáiði enga peysu.

Við ætlum að láta prjóna húfurnar svo við þurfum að mæla höfuðstærðina líka. Prjónakonan sagði að þetta myndi kosta svona 600 - 700 krónur sem mér finnst bara mjög vel sloppið.

Það þurfa allir að kaupa sér kringlótt gleraugu. Þau fást mjög líklega í dótabúðum.

Við verðum síðan að hittast helst á laugardaginn og mála rendur á peysurnar. Hvar getum við gert það?


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.04.2007 20:19:05 / Petra

Besti vinur barnanna!

Sálin mín er farin að dofna og ég er farin að tapa lífsviljanum!!...

 ég veit ekki, það gæti verið af því að ég er búin að lesa Heimi Pálsson í tvo daga og á enn meiri Heimi eftir til að lesa...

ég veit ekki en ég er nokkuð viss um að það er honum Heimi að þakka

en svona fyrir ykkur þá er hérna linkur til að fræðast meira um hann Heimi Pálsson sem okkur öllum  þykir svo vænt um :):):)

http://islenska.khi.is/heimpal/myndir.htm

Njótið...


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Hinir 6. bekkirnir